Fréttir


15.12.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Þingeyjarsveitar vegna Íbúðarbyggðar

Skipulagsstofnun staðfesti, 14. desember 2022, breytingu á Aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 30. nóvember 2022.

Í breytingunni felst að frístundabyggð (F-16), í landi Skóga vestan Illugastaðavegar, er breytt í íbúðarbyggð (ÍB-04) og byggingarheimildir rýmkaðar.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.