Fréttir


  • Hólsvirkjun

5.4.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Þingeyjarsveitar vegna stækkunar Hólsvirkjunar

Skipulagsstofnun staðfesti, 4. apríl 2022, óverulega breytingu á Aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2010-2022, sem samþykkt var í sveitarstjórn 3. mars 2022.

Í breytingunni felst aflaukning Hólsvirkjunar úr 5,5 MW í 6,7 MW.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.