Fréttir


  • Seftjörn

4.3.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Vesturbyggðar vegna Seftjarnar í Vatnsfirði, fiskeldi

Skipulagsstofnun staðfesti, 4. mars 2021, breytingu á Aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006 - 2018 sem samþykkt var í bæjarstjórn 17. febrúar 2021.

Í breytingunni felst skilgreining iðnaðarsvæðis I10 í Vatnsfirði þar sem heimilt verður að reka fiskeldisstöð með allt að 60 tonna ársframleiðslu.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.