Fréttir


  • Loftmynd af Vopnafirði

11.6.2020

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps vegna landbúnaðarsvæða, hverfisverndar og aðstöðu til fuglaskoðunar

Skipulagsstofnun staðfesti, 10. júní 2020, breytingu á Aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps 2006-2026 sem samþykkt var í sveitarstjórn 22. apríl 2020.

Breytingin felst í breyttum skipulagsákvæðum á landbúnaðarsvæðum, hverfisvernd er skilgreind á hluta miðsvæðis á Vopnafirði og gert er ráð fyrir aðstöðu til fuglaskoðunar á Skiphólma og við Nýpslón.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.