Fréttir


  • Þverárvirkjun

9.3.2021

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps vegna Þverárvirkjunar og Vopnafjarðarlínu 1

Skipulagsstofnun staðfesti, 8. mars 2021, breytingu á Aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps 2006 - 2026 sem samþykkt var í sveitarstjórn 21. janúar 2021.

Í breytingunni felst að rúmlega 8 ha landbúnaðarsvæði er breytt í iðnaðar­svæði fyrir allt að 6 MW vatnsaflsvirkjun. Skilgreind eru ný efnistökusvæði. Einnig verður hluti af Vopnafjarðarlínu 1 lagður í jörð yfir Hellisheiði og núverandi loftlína fjarlægð á nokkurra kílómetra kafla.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.