Fréttir


14.11.2019

Staðfesting á óverulegri breytingu á aðalskipulagi Stykkishólmsbæjar vegna iðnaðarsvæðis við Ögur

Skipulagsstofnun staðfesti, 13. nóvember 2019, breytingu á Aðalskipulagi Stykkishólms 2002-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 31. október 2019.

Í breytingunni felst að óbyggðu svæði við Ögur í Stykkishólmsbæ er breytt í iðnaðarsvæði fyrir urðunarstað fyrir óvirkan úrgang.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.