Fréttir


24.3.2023

Staðfesting á óverulegri breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna stækkunar íbúðarsvæðis (ÍB9) við Dalbraut

Skipulagsstofnun staðfesti 23. mars 2023 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 sem samþykkt var í bæjarstjórn 8. febrúar 2023.

Í breytingunni felst stækkun á íbúðarbyggð ÍB9 um 0,1 ha og íþróttasvæði ÍÞ2 minnkar sem stækkuninni nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.