Fréttir


12.10.2022

Staðfesting á Svæðisskipulagi Austurlands 2022-2044

Skipulagsstofnun staðfesti 12. október 2022 Svæðisskipulag Austurlands 2022-2044, sem samþykkt var í svæðisskipulagsnefnd Austurlands þann 2. september 2022.

Málsmeðferð var samkvæmt 22.-25.gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast svæðisskipulagið á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar það hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.