Fréttir


4.12.2019

Staðfesting um breytingu á aðalskipulagi Tálknafjarðar vegna Dunhaga

Skipulagsstofnun staðfesti, 27. nóvember 2019, breytingu á Aðalskipulagi Tálknafjarðar 2006-2018 sem samþykkt var í sveitarstjórn 14. nóvember 2019.

Í breytingunni felst að svæði fyrir þjónustustofnanir (S3 Dunhagi) og óbyggðu svæði á Tálknafirði er breytt í 0,3 ha svæði fyrir verslun á þjónustu.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.