Fréttir


  • Vatnsaflsvirkjun í Garpsdal

17.3.2021

Staðfestinga á breytingu á aðalskipulagi Reykhólahrepps vegna vatnsaflsvirkjunar í landi Garpsdals

Skipulagsstofnun staðfesti, 12. mars 2021, breytingu á Aðalskipulagi Reykhólahrepps 2006-2018 sem samþykkt var í sveitarstjórn 19. nóvember 2020.

Með breytingunni er tæplega 5 ha landbúnaðarsvæði í landi Garpsdals breytt í iðnaðarsvæði (I4) fyrir vatnsaflsvirkjun (950 kW).

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.